Vinnustofan er góður undirbúningur fyrir þau sem eru að taka sín fyrstu skref með söngskálar úr kristal eða langar að læra betur að spila á þær.
Hvað er kennt?
Spilatækni - Hvernig er spilað á söngskálar til að skapa þægilega tóna.
Áhöld - Hver er munurinn á þeim og hvernig á að nota þau.
Fleiri hljóðfæri verða kynnt og prófuð.
Æfingar með mismunandi áhöldum og skálum.
Þarf ég að eiga skálar?
Nei, það þarf ekki að eiga skálar til að vera með. Þú færð að prófa skálar, áhöld og önnur hljóðfæri á staðnum. Ef þú átt skál, taktu hana þá endilega með.
Hvernig skrái ég mig?
Sendu skilaboð hér litilskref@litilskref.is til að skrá þig eða ef þig langar að fá meiri upplýsingar.
Verð 26.900. (Stéttarfélög styrkja oft.)
======≈=====≈=====≈=====≈=====
Söngskálar eru notaðar í tónheilun og slökunartímum þar sem markmiðið er að ná djúpri slökun.
Þessi vinnustofa er fyrsta skrefið í að kynnast söngskálum.
Leiðbeinandi er Berglind, sem starfar einnig sem markaðsstjóri. Hún kynntist fyrst tónheilun með kristals-söngskálum árið 2018, þegar hún var að læra um hljóðbylgjur og jákvæð áhrif þeirra á líkamann. Berglind heillaðist strax af þessum mögnuðu hljóðfærum og áhrifunum sem þau höfðu á hana. Berglind hefur verið með slökunartíma með tónheilun hjá Yogandi á Akranesi, Fitness bilinu Hveragerði, Akranesvita, Endurheimt, Yogalíf í Kópavogi, og Yogavitund í Garðabæ.