Back to All Events

Möntrusöngur, Yoga Nidra, Cacao & Tónheilun


Komdu að hreyfa við orkunni þinni með söng, æfingum sem aðstoða þig við að koma orkunni þinni í jafnvægi og hreyfa við hálsstöðinni þinni.

Fjögur skipti af nærandi samveru - Alla þriðjudaga í október frá kl. 19.30-21.15

Við gerum við æfingar sem hækka orkutíðnina þína, veita henni jafnvægi og róa um leið taugakerfið þitt. Æfingarnar hjálpa þér að losa þig við neikvæða og/eða staðnaða orku í efnis-, tilfinninga- og orkulíkama með því að syngja möntrur, losa um hálsstöðina, hugleiða og fá tónheilun.

Allir tímar byrja á hjartaopnandi cacao og enda á yoga nidra og tónheilun.

Við eflum orkuflæðið með æfingum fyrir hálsstöðina, með söng, með því að kyrja saman og hugleiða, með orkulækningum, mudrum, heilun handa, tapping og fleiri áhrifaríkum æfingum til að hreyfa við orkustöðvunum, sogæðakerfi, orkubrautum og um leið róa og koma jafnvægi á taugakerfið þitt.

Þú lærir að tengjast orkustöðvum og líkama þínum betur í gegnum æfingar fyrir hálsstöðina þína. Hálsstöðin er upphafið að andlegri tengingu og hjálpar okkur við tjáningu og sköpunarkraft.

Lögð er áhersla á tengingu við líkama með hugleiðslu, yoga nidra sem aðstoðar þig við líkamsvitund og núvitund. Streita og áföll leiða til þess að hugur og líkami aftengjast og með æfingunum sem við munum leggja áherslu á þann mikilvæga þátt að tengja huga og líkama með yoga nidra, líkams- og núvitund.

Þú lærir að efla lífsorkuna (prana) innra með þér með því að kyrja og syngja með okkur, lærir um möntrur og hvað þær eru heilandi fyrir líkama og sál og færð að finna það á eigin skinni.

Boðið er upp á ljúffengt hjartaopnandi cacao í öllum tímum.

Komdu í öfluga sjálfsheilun með Kolbrúnu og Danna.

Þriðjudaga í október frá kl. 19.30-21.15

​Hefst 6. október 2026

Verð: 22.900 kr

Hafðu samband til að skrá þig á lifdubeturmedther@gmail.com
Takmarkað pláss  færri hafa komist að á þessi námskeið en vilja hingað til

...

Kolbrún Ýr er heilari, Reikimeistari, Hjartaheilari, Kundalini - Reiki og KAP orkumeðferðaraðili, tónheilari, Hata, Yin, Nidra jógakennari, öndunarleiðbeinandi. Nánari upplýsingar á lifdubeturmedther.is

Danni TRPTYCH er Tónlistarmaður, Tónheilari og Reikimeistari.
trptych.com

Previous
Previous
September 23

Hatha Yoga Workshop with Monica