Back to All Events

Ró í REYR með Kristínu Báru


Verið hjartanlega velkomin á nærandi viðburð fyrir taugakerfið, til að gefa líkama & huga kærkomna hvíld.

Með blöndu af hugleiðslu, djúpslökun & tónheilun leiðir Kristín Bára þig inn í ferðalag þar sem við hlúum að sál & líkama & virkjum slakandi hluta taugakerfisins. Hún notast við ævaforna hugleiðslutækni sem hefur kraft til að taka okkur inn í djúpa slökun.

Gongið & Kristalsskálarnar fá að njóta sín - tónferðalag sem snertir alla okkar tilvist. Hugurinn gefur eftir inn í kyrrðina handan hugans þar sem endurheimt á sér stað, ónæmiskerfið styrkist & streitan minnkar.

Ásetningurinn er að upplifa hugarró, djúpa kyrrð & áreynslulausa streitulosun. Að falla frá hugsunum & gjörðum yfir í að finna & vera. Sleppa takinu á væntingum hugans & líða inn í djúpa slökun.

Athugið að fjöldi þátttakenda er takmarkaður.

DAGSETNINGAR:
Föstudagurinn 16. október, kl. 17:00-18:15 - skráning hér
Miðvikudagurinn 28. október, kl. 17:00-18:15 - skráning hér
Miðvikudagurinn 11. nóvember, kl. 17:00-18:15 - skráning hér

STAÐUR:
REYR stúdíó, Fiskislóð 31B

VERÐ:
Stakur viðburður 5.900 kr

Allar fyrirspurnir eru velkomnar á bryndisardottir@gmail.com.


Kristín Bára

Kristín Bára er menntaður hjúkrunarfræðingur frá Háskóla Íslands & hefur starfað við það á ýmsum vettvangi. Hjúkrun er í eðli sínu heildræn nálgun á einstaklinginn & er að hennar mati fullkomin blanda við jógísk fræði.

Hún sótti sér kennararéttindi í Yoga Nidra árið 2019, kláraði framhaldsnám árið 2021 & lauk 100 klst kennaranámi í Yoga Therapy árið 2025 hjá Amrit Yoga Institute undir leiðsögn Kamini Desai.

Hún hefur sótt sér þjálfun í gongspilun & tónheilun með kristalsskálum hjá Arnbjörgu & Saraswati Om.
Á að baki 200 klst jógakennaranámi frá Vikasa Yoga, 50 klst Yin Yoga TT hjá Salvöru Davíðs & er með kennararéttindi í Qigong.

Árið 2023 lauk hún eins árs námi í Compassionate Inquiry á vegum Dr. Gabor Maté & Sat Dharam Kaur. Nánar um það hér: https://compassionateinquiry.com/

Kristín Bára hefur leitt Yoga Nidra & Tónheilun um árabil & hefur víðtæka reynslu af því að halda öruggu rými fyrir einstaklinga & hópa samhliða starfi sínu sem meðferðaraðili.

Previous
Previous
September 29

Blue Lotus Te Seremónía - Orkujöfnun - Yoga Nidra & Tónheilun

Next
Next
October 5

Komdu í jóga, maður! með Stefáni Atla