Komdu í dásemdarstund þar sem við heiðrum og njótum Blue Lotus tesins, tengjumst líkamanum & gerum æfingar sem hækka orkutíðnina þína & um leið róa taugakerfið þitt, hugleiðum og finnum víbring heilandi tóna
Blue Lotus hefur í þúsundir ára verið notað í helgisiðum fyrir ró, hjartaopnun, innsæi og draumavinnu. Í þessari te-seremóníu munum við drekka Blue Lotus te og leyfa líkama og huga að mýkjast inn í djúpt slökunarástand.
Við gerum æfingar sem hreyfa við þinni innri orku um leið og við róum taugakerfið þitt eins konar orkujöfnun út frá áfalla- og streitujóga sem og orku lækningum.
Yoga Nidra hugleiðsla leiðir þig í ástand milli vöku og svefns, þar sem taugakerfið endurstillist, undirmeðvitundin opnast og hugurinn verður móttækilegur fyrir innsæi og heilun.
Mjúkt tónferðalag allan tímann sem aðstoðar þig við að ná enn betri slökun í líkama og sál.
Blue Lotus Te er þekkt fyrir að veita líkamanum ró, bæta líðan og svefn.
Þessi stund er fyrir þig ef þú:
- vilt djúpa hvíld og innri ró
- vilt tengjast innsæi þínu og draumaheimi
- vilt skapa nærandi tíma fyrir sjálfa/n þig
Komdu í þægilegum fatnaði, við erum með augnhvílur en ef þú átt þína uppáhalds er gott að taka hana með & vatnsbrúsa.
Verð: 6900 kr
Hlökkum til að taka á móti ykkur
...
Kolbrún Ýr er heilari, Reikimeistari, Hjartaheilari, Kundalini - Reiki og KAP orkumeðferðaraðili, Tónheilari, Hata, Yin, Nidra jógakennari, öndunarleiðbeinandi, núvitundar- og hugleiðslukennari. Nánari upplýsingar á lifdubeturmedther.is
Danni TRPTYCH er Tónlistarmaður, Tónheilari og Reikimeistari.
trptych.com