Eru mjaðmirnar stífar? Hvað með axlirnar eða bakið? Er kollurinn sífellt á fullu? Og hvað er svo langt síðan að þú náðir að teygja fingurna niður í tær?
Afsakaðu yfirheyrsluna en þetta er það sem margir karlmenn finna fyrir, sérstaklega þeir sem hafa látið líkamsræktina sitja á hakanum. Já, kallinn minn. Þetta er bara staðan. En ekki örvænta, þú ert á réttum stað.
Á þessu námskeiði þarft þú hvorki að vera liðugur, sterkur né hafa reynslu af jóga til að byrja. Þetta námskeið er fyrir karla sem vilja auka hreyfanleika, byggja upp styrk og jafnvægi í líkama og huga. En fyrst og fremst er markmið námskeiðsins að þér líði betur í eigin líkama eftir síðasta tímann.
Líkaminn er farartækið þitt í gegnum lífið og það er kominn tími á smurningu.
Markmið námskeiðsins
Aukinn líkamlegur styrkur
Aukinn hreyfanleiki
Meiri liðleiki
Líkamleg og hugræn slökun
Upplýsingar um námskeiðið
Sex æfingar
Mánudaga og miðvikudaga kl. 18:15-19:30
Fyrsta æfingin 2. september
Síðasta æfingin 21. september
Reyr studio, Fiskislóð 31B, 2. hæð
Verð: 27,900 kr.
15 pláss
Jógadýnur á staðnum.
Mæta í þægilegum fötum til að hreyfa sig í.
Einhverjar spurningar? Sendu okkur póst á hello@practiceroom.is
Stefán Atli
Stefán Atli Thoroddsen er jógakennari og stofnandi The Practice Room. Hann hefur iðkað jóga frá árinu 2010 og kennt síðan 2021, með yfir þúsund kennslustundir að baki.
Í kennslunni vinnur Stefán með hreyfingu, andardrátt og hvíld — blöndu af styrk og mýkt sem gefur líkamanum rými til að losa um spennu og huganum tækifæri til að hægja á sér.
Stefán lauk 200 stunda jógakennaranámi hjá Yoga Shala Reykjavík árið 2021 og hefur einnig menntað sig í kennslu í Yoga Nidra og öndunaræfingum, svo eitthvað sé nefnt. Honum finnst mikilvægast að fólk finni að jóga geti verið aðgengileg, hagnýt og góð leið stunda líkamsrækt sem nýta má til að láta sér líða betur í eigin líkama.