Back to All Events

Ró í REYR


Miðvikudaginn 15. apríl & annan hvern miðvikudag eftir það, býður Kristín Bára þér upp á nærandi viðburð fyrir taugakerfið, til að gefa líkama & huga kærkomna hvíld.

Ásetningurinn er að upplifa hugarró, djúpa kyrrð & áreynslulausa streitulosun. Að falla frá hugsunum & gjörðum yfir í að finna & vera. Sleppa takinu & treysta flæðinu.

Með blöndu af hugleiðslu, djúpslökun & tónheilun leiðir Kristín Bára þig inn í ferðalag þar sem við hlúum að sál & líkama & virkjum slakandi hluta taugakerfisins. Hún notast við ævaforna hugleiðslutækni sem hefur kraft til að taka okkur inn í djúpa slökun.

Gongið & Kristalsskálarnar fá að njóta sín - tónferðalag sem snertir alla okkar tilvist, alveg niður í smæstu frumur. Hugurinn gefur eftir inn í kyrrðina handan hugans þar sem endurheimt á sér stað, ónæmiskerfið styrkist & streitan minnkar. Fátt er betra en að leyfa sér að sleppa takinu á væntingum hugans & líða inn í djúpa slökun.

Athugið að fjöldi þátttakenda er takmarkaður.


Helstu upplýsingar:

DAGSETNINGAR:
Miðvikudagurinn 15. apríl 2026
Miðvikudagurinn 29. apríl 2026
Miðvikudagurinn 13. maí 2026
Miðvikudagurinn 27. maí 2026

TÍMASETNING: kl. 17:00-18:30
STAÐUR: REYR stúdíó, Fiskislóð 31B
VERÐ: 5900 kr
15% afsláttur fyrir alla þá sem bóka á alla fjóra viðburðina.

SKRÁNING: Leggja inn á reikning 512-26-3005 kt 3005825249 til að tryggja pláss & setja vor2026 í skýringu.
Allar fyrirspurnir eru velkomnar á bryndisardottir@gmail.com.


Kristín Bára

Kristín Bára er menntaður hjúkrunarfræðingur frá Háskóla Íslands & hefur starfað við það á ýmsum vettvangi. Hjúkrun er í eðli sínu heildræn nálgun á einstaklinginn & er að hennar mati fullkomin blanda við jógísk fræði.

Hún sótti sér kennararéttindi í Yoga Nidra árið 2019 hjá Amrit Yoga Institute undir leiðsögn Kamini Desai & kláraði framhaldsnám árið 2021.

Hún hefur lokið 200 klst jógakennaranámi frá Vikasa Yoga & er með kennararéttindi í Qigong. Hún hefur sótt sér þjálfun í gongspilun & tónheilun með kristalsskálum hjá Arnbjörgu & Saraswati Om. Hún lauk síðan nýverið 50 klst Yin Yoga TT hjá Salvöru Davíðs.

Fyrir tveimur árum lauk hún eins árs námi í Compassionate Inquiry á vegum Dr. Gabor Maté & Sat Dharam Kaur.
https://compassionateinquiry.com/

Kristín Bára hefur um árabil leitt Yoga Nidra & Tónheilun í Yogashala Reykjavík & hefur víðtæka reynslu af því að halda öruggu rými fyrir einstaklinga & hópa.

Previous
Previous
April 14

Raddheilun Námskeið - Voice Activation & Voice Healing

Next
Next
April 16

MEÐ MÝKT inní vorið með Elmu Dögg