KAP með lifandi tónferðalagi & Cacao
Stundin hefst á hjartaopnandi Cacao sem hjálpar þér að setjast í hjartaorkuna þína og slökunarástand inn í líkamann þinn.
Við notum 100% hreint, lífrænt og heilsubætandi Cacao frá Perú.
KAP er Djúp Orkuvinna
Við vinnum með þína innri orku, hjálpum þér að komast nær kjarnanum. Mikil sjálfsvinna og heilun á sér stað í þessum tímum. Ákveðið hugleiðslu ástand sem hjálpar þér að vinna úr streitu, orkuleysi, vanlíðan, bætir svefn, eykur sköpun og þannig má lengi telja.
Kundalini lífskrafturinn býr innra með okkur öllum.
Fólk upplifir allt milli þess að finna fyrir djúpslökun, losa um allskonar tilfinningar. Getur fundið fyrir titring og þörf fyrir hreyfingu. En flestir eiga það sameiginlegt að nærast af þessum tíma, tengjast betur sjálfum sér og líða almennt mun betur.
KAP er næring fyrir taugakerfið þitt
Við hefjum stundina oft á öndunaræfingum eða hristing eftir því hvað við á og til þess að keyra orkuna í gang. Þú liggur á dýnu í rúmlega klukkutíma. Í orkuvinnunni snertum við nokkra orkupunkta líkamans en vinnum líka með orkuna án snertinga fyrir ofan þig. Það má biðja um enga snertingu ef það hentar þér ekki.
Í tímanum er mögnuð lifandi tónlist og spilar hún stórt hlutverk á ferðalaginu þar sem tónarnir smjúga inn í orkuna þína og líkama og hreyfa við því sem þú þarft á að halda.
Komdu í þægilegum fatnaði og með augngrímu eða augnhvílu með þér (við erum einnig með augngrímur til láns).
Verð: 9500 kr
Hlökkum til að taka á móti ykkur <3
Trptych (Danni) leiðir lifandi tónferðalag, Kolbrún & Lovísa leiða KAP orkuvinnu.