Rólegir jógatímar þar sem við einblínum á að draga úr streitu, róa hugann og liðka líkamann. Tímarnir fara fram á miðvikudagskvöldum kl. 20-21:15, 3. september - 15. október (enginn tími verður 17. september). Verð 18.900 kr. eða 4.000 kr. fyrir stakan tíma. Minnum á stéttarfélagsstyrki.
Skráning fer fram HÉR
Tímarnir munu einkennast af mjúku flæði, teygjum og öndunaræfingum með það í huga að minnka streitu í líkamanum og finna meiri ró. Tímarnir eru meðal annars byggðir á æfingum frá jóga þerapíu þar sem við vinnum með taugakerfið okkar. Hver tími mun enda með djúpri slökun og hvíldaræfingum. Förum með mýkt inní haustið!
Kennari námskeiðsins er Elma Dögg, eigandi REYR Studio. Hún hefur starfað sem jógakennari í yfir 6 ár, meðal annars kennt í Reykjavík Yoga og Yoga Shala en einnig á Spáni. Hún tók grunnnám í Hatha Yoga á Indlandi og hefur síðan bætt við sig réttindum í Restorative Yoga, Yin Yoga, meðgöngujóga ásamt ýmsum námskeiðum í Yoga þerapíu.
Skráning fer fram HÉR