Skráning hér
Yoga Nidra · Lucid Dreaming · Djúpslökun & Tónheilun
Þér er boðið í helga og umbreytandi stund þar sem við sameinum forna visku Blue Lotus blómsins, djúpa slökun Yoga Nidra & innleiðingu í heim meðvitaðra drauma (Lucid Dreaming).
Blue Lotus hefur í þúsundir ára verið notað í helgisiðum fyrir ró, hjartaopnun, innsæi og draumavinnu. Í þessari te-seremóníu munum við drekka Blue Lotus te með fullri meðvitund og leyfa líkama og huga að mýkjast inn í djúpt slökunarástand.
Yoga Nidra hugleiðsla leiðir þig í ástand milli vöku og svefns, þar sem taugakerfið endurstillist, undirmeðvitundin opnast og hugurinn verður móttækilegur fyrir innsæi og heilun.
Mjúkt tónferðalag sem aðstoðar þig við að ná enn betri slökun inn í þessa stund.
Í lokin verður mild leiðsögn inn í Lucid Dreaming, þar sem þú færð verkfæri til að:
- auka draumaminni
- verða meðvitaðri í draumum
- tengjast dýpri lögum undirmeðvitundarinnar
- vinna með drauma og núvitund sem leið til sjálfskönnunar og sköpunar
Þessi stund er fyrir þig ef þú:
djúpa hvíld og innri ró
vilt tengjast innsæi þínu og draumaheimi
ert forvitin/n um hugleiðslu, draumavinnu og breytta meðvitund
vilt skapa nærandi tíma fyrir sjálfa/n þig
Þú mátt búast við:
Helgri te-seremóníu með Blue Lotus
Leiddri Yoga Nidra hugleiðslu (liggjandi)
Fræðslu og leiðsögn í Lucid Dreaming
Öruggu, hlýju og nærandi rými
Komdu í þægilegum fatnaði, við erum með augnhvílur en ef þú átt þína uppáhalds er gott að taka hana með, vatnsbrúsa, blað og penna.
Þriðjudaginn 17. febrúar, kl. 19:30-21:00
REYR Studio, Fiskislóð 31B
Verð: 7500 kr
Skráning hér
Fyrir spurningar eða nánari upplýsingar: lifdubeturmedther@gmail.com
Við hlökkum til að sjá þig Kolbrún og Danni.