Back to All Events

KAP með lifandi tónferðalagi og cacao

KAP Kundalini Activation Process

Komdu að stilla "aðal" hljóðfærið þitt, líkama og orku inn í sumarið

Stundin hefst á hjartaopnandi Cacao sem hjálpar þér að setjast í hjartaorkuna þína og slökunarástand inn í líkamann þinn.
Við notum 100% hreint, lífrænt og heilsubætandi Cacao frá Perú.

KAP er Djúp Orkuvinna
Við vinnum með þína innri orku, hjálpum þér að komast nær kjarnanum. Mikil sjálfsvinna og heilun á sér stað í þessum tímum. Ákveðið hugleiðslu ástand sem hjálpar þér að vinna úr streitu, orkuleysi, vanlíðan, bætir svefn, eykur sköpun og þannig má lengi telja.
Kundalini lífskrafturinn býr innra með okkur öllum.
Fólk upplifir allt milli þess að finna fyrir djúpslökun, losa um allskonar tilfinningar. Getur fundið fyrir titring og þörf fyrir hreyfingu. En flestir eiga það sameiginlegt að nærast af þessum tíma, tengjast betur sjálfum sér og líða almennt mun betur.

KAP er smjör fyrir taugakerfið þitt

Við hefjum stundina oft á öndunaræfingum eða hristing eftir því hvað við á og til þess að keyra orkuna í gang.
Þú liggur á dýnu í rúmlega klukkutíma.

Í orkuvinnunni snertum við nokkra orkupunkta líkamans en vinnum líka með orkuna án snertinga fyrir ofan ykkur. Það má biðja um enga snertingu ef það hentar þér ekki.

Í tímanum er mögnuð lifandi tónlist og spilar hún stórt hlutverk á ferðalaginu þar sem tónarnir smjúga inn í orkuna þína og líkama og hreyfa við því sem þú þarft á að halda.

Komdu í þægilegum fatnaði og með augngrímu eða augnhvílu með þér ef þú vilt, við erum einnig með augngrímur til láns.

Verð: 9500 kr

Þú tryggir þér pláss með því að kaupa miða hér: https://www.lifdubeturmedther.is/_paylink/AZ4IhuuQ

Hlökkum til að taka á móti ykkur

Danni (Trptych) leiðir lifandi tónferðalag, Kolbrún & Lovísa leiða KAP orkuvinnu.

Viðburðurinn er haldinn í REYR Studio Fiskislóð 31 B.

Previous
Previous
May 19

Light Language Activation með Lifandi Tónlist & Cacao 💫

Next
Next
September 23

Hatha Yoga Workshop with Monica